Viðtal skurðlæknis
Hægt er að panta viðtal og skoðun hjá almennum skurðlækni. Þeir læknar sem starfa hjá okkur eru ekki með skurðstofu á hæðinni en þeir sinna hefðbundnum viðtölum og geta gert smáaðgerðir í staðdeyfingu á stofunni. Stærri aðgerðir sem krefast sérhæfðrar skurðstofu og svæfingar eru gerðar utan stofunnar á sjúkrahúsi sem þeir sjá um að skipuleggja í samráði við sjúkling.
