Logo Decor

Persónuvernd

Um heimasíðuna

Velkomin(n) á vef okkar domuslaeknar.is Vefurinn er ætlaður til að veita skjólstæðingum Domus Lækna upplýsingar um stöðina, hvaða þjónsta er í boði sem og fræðsluefni sem við teljum að gagnist okkar kúnnum.

Notkunarskilmálar

Forsenda þess að hægt sé að nota vefinn er að viðkomandi samþykki þessa notkunarskilmála. Heimilt er að nýta sér efni vefsins til einkanotkunar en ekki frekari birtingar. Heimilt er að vísa í síður vefsins af öðrum vefsíðum.

Mögulega er spurt um persónulega upplýsingar eins og símanúmer og kennitölu þegar viðkomandi sendir t.d fyrirspurn. Þessar upplýsingar eru geymdar til að koma þeim áleiðis til viðtakanda og mögulega á meðan á úrvinnslu stendur. Ef notendur vilja ekki að við höfum þessar upplýsingar ættu þá frekar að hringja. Vefurinn notar fótspor (cookies). Persónulegar upplýsingar eru ekki vistaðar í fótsporum. Nánar er kveðið á um þetta í yfirlýsingu okkar um persónuvernd. Skilmálar þessir geta breyst en gildandi útgáfa þeirra er ávallt aðgengileg á þessari síðu. Með því að nota vefinn domuslaeknar.is samþykkir notandi þessa notkunarskilmála.

Lagalegir fyrirvarar

Við gerum okkar besta að hafa réttar upplýsingar á vefnum. Við getum ekki ábyrgst að upplýsingarnar séu réttar. Þessar upplýsingar geta breyst án fyrirvara. 
Við berum ekki neina ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af upplýsingum er birtast á heimasíðu okkar né tjóni sem rekja má beint eða óbeint til notkunar á vef okkar. 
Allar þær upplýsingar sem fram koma á þessum vef erum við með höfundarrétt á nema annað sé tekið fram. Við þurfum að veita skriflegt samþykki ef á að safna, vinna með eða endurbirta upplýsingar sem hér koma fram, dreifa þeim eða afrita þær. Viðskiptavinum okkar er heimilt að vista þær til sinna einkanota.

Lagalegur fyrirvari vegna tölvupóstsendinga

Upplýsingar sem kom fram í tölvupósti sendum frá netföngum okkar geta innihaldið trúnaðarupplýsingar og/eða einkamál og eru eingöngu ætlaðar þeim sem hann er stílaður á. Efni hans og innihald er á ábyrgð þess starfsmanns sem sendir hann. Ef tölvupóstsending hefur ranglega borist einhverjum ber að gæta fyllsta trúnaðar, tilkynna sendanda og eyða mótteknum gögnum eins og kveðið er á um í 47. gr. laga nr. 81/2003 um fjarskipti.

Yfirlýsing um persónuvernd

Samþykki notkunarskilmála okkar (sem lesa má hér) er forsenda notkunar á þessum vef.

Vakin er athygli á því að þegar farið er inn á vefsíðu okkar vistast fótspor (e. cookies) í tölvu notandans. Þessi fótspor eru litlar textaskrár sem notaðar eru til þess að bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og greina heimsóknir á vefsíðuna. Aðrar vefsíður eiga ekki að geta lesið upplýsingarnar sem eru geymdar í fótsporinu.

Með því að samþykkja þessa skilmála um notkun á fótsporum er okkur m.a. veitt heimild til þess að safna og greina upplýsingar eins og t.d hversu margir gestir koma á vefinn,lengd innlita, tegund vafra, hvernig skrár eru sóttar og hvenær dags vefurinn er helst skoðaður o.s.frv.

Þessar upplýsingar eru notaðar til þess afla vitneskju um notkun á vefnum og hvaða efni notendur hafa áhuga á að skoða. Þannig er hægt að aðlaga vefinn betur að þörfum þeirra.

Hægt er að breyta öryggisstillingum á flestum vöfrum þannig að þeir taki ekki á móti fótsporum. Einnig er möguleiki að eyða þeim. Nánari upplýsingar um hvernig það er gert má finna á heimasíðum útgefenda vafranna.