Snemmsónar
Allir kvensjúkdómalæknarnir okkar bjóða uppá snemmsónar. Þegar kona fær jákvætt þungunarpróf er best að panta slíkan tíma að minnsta kosti 2 vikum seinna, helst 3-4 vikum seinna ( meðgöngulengd þá 7-8 vikur ) uppá að geta staðfest eðlilega þungun. Hjartsláttur byrjar yfirleitt að sjást í kringum 6 vikur+.
Slíkur sónar er ekki hluti af mæðravernd en mörgum konum þykir ákveðinn léttir að vita að þungunin sé á réttum stað (ekki utanlegsþungun), fóstrið sé lífvænlegt sem og að fjöldi fóstra sé þekktur ( einburi/fjölburar).
Sónarskoðun þetta snemma á meðgöngu er best að gera frá leggöngum þar sem fóstrið er of lítið til að hægt sé að sjá það með góðu móti með sónar í gegnum kviðvegg. Því eru allar sónarskoðanir hjá okkur gerðar í gegnum leggöng.
Maki eða aðstandandi er ávallt velkomin með ef þess er óskað. Ef þú vilt panta tíma í snemmsónar er best að nefna það við ritara þegar tími er pantaður þar sem flestir eru með frátekna tíma fyrir snemmsónar og biðtíminn því styttri en biðtími eftir almennum tíma.