Lykkjuuppsetning
Allir okkar kvensjúkdómalæknar geta gefið ráðleggingar og sett upp lykkjur, kopar sem og hormóna að ósk sjúklings. Ekki er þörf á að koma með lykkju með sér þar sem við eigum allar gerðir til á stofunni.
Til eru 2 mismunandi gerðir af koparlykkjum og 3 gerðir af hormónalykkjum og hægt er að fá ráðleggingar um hvers kyns lykkja hentar í hverju tilviki fyrir sig. Yfirleitt er hægt að fá ráðleggingar og setja upp lykkju í sama tímanum. Einnig er hægt að skipta út gamalli lykkju og setja nýja strax á eftir.
Koparlykkju er hægt að setja upp hvenær sem er í tíðahringnum að því gefnu að þungun hafi verið útilokuð, best er þó að setja hana upp á fyrstu 7 dögum tíðahringsins (dagur 1 er fyrsti dagur blæðinga).
Hormónalykkju þarf að setja upp á fyrstu 7 dögum tíðahringsins til að minnka líkur á blettablæðingum. Eðlilegt er þó að sumar konur upplifi blettablæðingar fyrstu dagana eftir uppsetningu og í sumum tilfellum getur tekið allt að 3-4 mánuði fyrir slíkar blæðingar að hætta alveg. Ef blæðingar verða langdregnari en það er ráðlagt að hafa samband við þinn kvensjúkdómalækni þar sem þá er hægt að fá töflur til að koma jafnvægi á aftur og stöðva þær blæðingar.
Uppsetning lykkju er yfirleitt einföld og tekur innan við örfáar mínútur en það má alltaf búast við smá óþægindum sem yfirleitt eru væg og ganga yfir á nokkrum mínútum/klukkustundum. Gott getur verið að taka bólgueyðandi verkjalyf fyrir tímann sem gera óþægindin mun vægari.
Koparlykkjur kosta 15.000kr og hormónalykkjur kosta frá 22.000 kr – 28.000kr ( Jaydess, Mirena, Kyleena). Ofan á þetta leggst síðan hefðbundinn kostnaður við læknisheimsóknina.