Krabbameinsskimun / PAP strok
Konur á aldrinum 23 – 29 ára fá boð í skimun fyrir leghálskrabbameini á 3 ára fresti og konur frá 30 – 64 ára á 5 ára fresti. Boð berast frá Samhæfingarstöð krabbameinsskimana. Skimunin er framkvæmd af ljósmóður eða hjúkrunarfræðingi á heilsugæslunni eða af kvensjúkdómalækni á stofu.
Á Íslandi greinast um 19 á hverju ári með leghálskrabbamein og um 1.700 með frumubreytingar sem geta þróast í leghálskrabbamein sé ekkert að gert. Regluleg skimun fyrir leghálskrabbameini getur lækkað dánartíðni af völdum sjúkdómsins um 80 – 90%.
Þrátt fyrir að sumar konur hafi fengið bólusetningu við HPV veirunni er ráðlagt að fara reglulega í skoðun þar sem bólusetning getur aldrei komið að fullu í veg fyrir frumubreytingar.
Skimunin er gerð við hefðbundna kvenskoðun en litlum bursta er strokið yfir slímhúð leghálssins. Þetta tekur innan við 1 mín og er sársaukalaust þó sumar konur finni fyrir vægum óþægindum.
Við rannsókn á sýninu er athugað hvort frumubreytingar séu til staðar og eða Human papilloma veira (HPV), en hún er aðalorsök frumubreytinga í leghálsi. Í flestum tilfellum nær líkaminn að vinna á veirusýkingunni en um 10% fá viðvarandi sýkingu sem valdið getur frumubreytingum og síðar krabbameini í leghálsi sé ekkert að gert. Konur finna sjaldnast fyrir því að þær séu með HPV veiru og því mikilvægt að mæta í skimun.

Kostir skimunar
- Betri batahorfur
- Því fyrr sem frumubreytingar finnast því fyrr er hægt að fylgjast með þróun þeirra og grípa inn í ef og þegar þörf krefur.
Ókostir skimunar
- Óþægindi við sýnatöku – sumum konum finnst hún óþægileg þó lítill sársauki fylgi henni.
- Áhyggjur meðan beðið er eftir niðurstöðum – Það tekur um 3-4 vikur að rannsaka sýni.
Niðurstaða úr sýnatökunni kemur inn á island.is.
Neikvæð niðurstaða merkir að ekki fundust frumubreytingar eða HPV veira við skoðun á sýninu. Ef niðurstöða er neikvæð færð þú boð í næstu skimun eftir 3 eða 5 ár eftir aldri þínum.
Jákvæð niðurstaða merkir að frumubreytingar eða HPV veira hafi fundist í sýninu. Í framhaldi af því er þér boðið sérstakt eftirlit eða meðferð eftir því hver niðurstaðan var.
- Vægar frumubreytingar – fylgst með þróun breytinganna með fleiri sýnatökum en í flestum tilfellum ganga þær til baka, þ.e. líkaminn vinnur á sýkingunni.
- Alvarlegar frumubreytingar eru oft meðhöndlaðar með keiluskurði til að fjarlægja sýkta svæðið en hafi krabbamein þegar myndast er þér boðin meðferð. Meðferðin getur verið fólgin í skurðaðgerð, geislameðferð eða lyfjameðferð.
Stöku sinnum getur komið fyrir að ekki sé hægt að rannsaka sýnið t.d. ef það reynist of lítið. Í þeim tilfellum er gefinn nýr tími í sýnatöku.
Mögulegt er að fá leghálskrabbamein, jafnvel þó niðurstöður skimana hafi verið eðlilegar. Því er mikilvægt að þú hafir samband við heilsugæsluna eða kvensjúkdómalækni finnir þú fyrir óeðlilegum verkjum í neðri hluta kviðarhols, óvenjulegum blæðingum eða breyttri útferð.
Frekari upplýsingar á heimasíðu landlæknis: Skimun fyrir leghálskrabbameini