Logo Decor

Breytingarskeiðið-ráðleggingar

Allar konur ganga í gegnum breytingarskeiðið sem byrjar allt að 10 árum áður en konur hætta að hafa blæðingar og getur varað í mörg ár eftir að blæðingar hætta.

Mjög misjafnt er hversu mikil einkenni konur fá og í dag er mikil umræða í þjóðfélaginu um hvað sé hægt að gera við mismunandi einkennum. Talsvert mikið er um rangar staðhæfingar í sambandi við meðferð við einkennum þessa tímabils og mikilvægt að konur fái réttar og ritrýndar leiðbeiningar um hvað sé rétt að gera og hvað sé betra að forðast.

Allir okkar kvensjúkdómalæknar halda þekkingu sinni á þessu viðfangsefni “up to date” en talsvert hefur verið um nýjar ráðleggingar undanfarin ár og miserfitt hefur tekist að koma þeim upplýsingum á framfæri en margir telja enn að þær rannsóknir sem birtar voru fyrir 20 árum séu þær einu réttu.

Meðferðir eru misjafnar eftir því hvaða einkenni konur eru aðallega að kljást við og mikilvægt er að meta hvert og eitt tilfelli fyrir sig svo sem réttust meðferð er veitt ef veita á meðferð á annað borð.

Stundum þarf að prófa sig áfram og ekki endilega að fyrsta val á meðferð henti en þá er yfirleitt lítið mál að endurmeta stöðuna og reyna aðra meðferð. Nánari fræðsla um breytingarskeiðið má finna hér.