Logo Decor

Lichen sclerosis bólgusjúkdómur

Lichen sclerosus er langvinnur bólgusjúkdómur í húð sem kemur oftast fram á ytri kynfærum kvenna og í kringum endaþarmsop. Sjúkdómurinn er ekki smitandi og er ekki kynsjúkdómur. Hann getur komið fram á öllum aldri en er algengastur eftir tíðahvörf.

Hver eru helstu einkenni?

Einkenni geta verið mismikil og sumar konur hafa lítil eða engin einkenni. Algengt er að finna fyrir:

  • Kláða, sviða eða eymslum á kynfærasvæði
  • Þurrki og viðkvæmni í húð
  • Hvítleitum, þunnum eða glansandi húðsvæðum
  • Litlum sprungum eða sárum sem geta blætt
  • Sársauka við samfarir
  • Sviða eða óþægindum við þvaglát
  • Breytingum á útliti ytri kynfæra

Ef sjúkdómurinn er lengi ómeðhöndlaður getur myndast örvefur. Þá geta skapabarmar minnkað eða samlagast, húð getur þrengst yfir sníp og leggangaop getur orðið þrengra.

Hvers vegna kemur lichen sclerosus?

Orsökin er ekki að fullu þekkt. Talið er að ónæmiskerfið gegni mikilvægu hlutverki og sjúkdómurinn er algengari hjá einstaklingum með ákveðna sjálfsofnæmissjúkdóma, til dæmis skjaldkirtilssjúkdóma.

Hormón, erfðir og eiginleikar húðarinnar geta einnig haft áhrif. Lichen sclerosus stafar ekki af lélegu hreinlæti og smitast ekki á milli einstaklinga.

Hvernig er greiningin gerð?

Greining fæst oft með skoðun hjá lækni sem þekkir vel til sjúkdómsins. Stundum er tekið lítið vefjasýni úr húðinni, sérstaklega ef útlitið er ódæmigert, greiningin óljós eða svæði svarar ekki meðferð.

Hvernig er lichen sclerosus meðhöndlað?

Fyrsta val í meðferð er yfirleitt sterkt barksterakrem eða -smyrsli, oftast clobetasol propionate. Markmiðið er að minnka bólgu, kláða og eymsli, græða sprungur og koma í veg fyrir örmyndun og varanlegar breytingar á kynfærum.

Meðferðin er gjarnan tíðari í upphafi og síðan minnkuð samkvæmt fyrirmælum læknis. Margar konur þurfa áfram viðhaldsmeðferð, til dæmis nokkrum sinnum í viku, til að halda sjúkdómnum niðri.

Sterk sterameðferð á þessu svæði er almennt örugg þegar hún er notuð á réttan hátt samkvæmt leiðbeiningum. Mikilvægt er því að hætta ekki meðferð af ótta við stera án samráðs við lækni.

Einnig er yfirleitt mælt með vægri staðbundinn estrogen meðferð sem getur haft verndandi áhrif. Vagifem, Vagidonna eða Ovestin er þá yfirleitt notað.

Húðumhirða skiptir máli

Gott er að forðast það sem getur ert húðina. Nota má mild, ilmefnalaus rakakrem eða verndandi smyrsli reglulega. Forðast ætti ilmandi sápur, sturtugel, blautþurrkur og aðrar snyrtivörur sem geta ert kynfærasvæðið.

Yfirleitt nægir að þvo svæðið varlega með volgu vatni eða mildum, ilmefnalausum hreinsivörum. Forðast ætti að skrúbba húðina. Við samfarir getur sleipiefni hjálpað ef húðin er þurr eða viðkvæm.

Er lichen sclerosus hættulegt?

Flestar konur ná góðri stjórn á sjúkdómnum með réttri meðferð. Lichen sclerosus tengist þó lítillega aukinni hættu á flöguþekjukrabbameini í ytri kynfærum (vulvar squamous cell carcinoma). Hættan er lítil, en þetta er ein ástæða þess að mikilvægt er að meðhöndla sjúkdóminn og fylgjast reglulega með húðinni.

Leita ætti til læknis ef fram kemur nýtt sár sem grær ekki, hnútur, þykknun í húð, viðvarandi hrúður, blæðing eða ný og viðvarandi breyting á ákveðnu svæði.

Eftirlit

Lichen sclerosus er yfirleitt langvinnur sjúkdómur og því er reglulegt eftirlit mikilvægt, jafnvel þótt einkennin séu lítil. Með góðri meðferð er oft hægt að halda sjúkdómnum vel niðri, draga úr einkennum og minnka líkur á örmyndun og öðrum fylgikvillum.

Mikilvægt: Ef þú ert með einkenni eða húðbreytingar sem gætu samræmst lichen sclerosus er ráðlagt að fá mat hjá lækni. Meðferð er einstaklingsbundin og sterakrem á að nota samkvæmt fyrirmælum.