Letrozole frjósemismeðerð
Hvaða lyf er Letrozole?
Lyfið var fyrst notað til að meðhöndla brjóstakrabbamein en fljótlega kom í ljós að það hvetur áfram egglos svo síðan árið 2000 hefur það verið notað “off-label” til þess að hjálpa konum með að verða þungaðar.
Þetta er fyrsta meðferð sem notuð er hjá konum með PCOS/PMOS sem er ástand þar sem egglos er óreglulegt eða jafnvel alls ekki til staðar. Einnig er letrozole notað hjá konum með óútskýrða ófrjósemi.
Hvernig virkar lyfið:
Letrozole er vanalega tekið 1x á dag oftast 2 töflur í einu í alls 5 daga. Lyfið kemur í veg fyrir að androgen hormone breytist í estrogen. Þegar estrogenframleiðsla er stöðvuð fær heiladingullinn skilaboð að hann þurfi að mynda meira egglosörvandi hormone ( follicle stimulation hormone, FSH) sem hvetur eggjastokkinn til að búa til egg. Stundum fá konur sem taka lyfið tvö egglos þar sem FSH gildið getur orðið talsvert hærra en þegar konur fá egglos af náttúrulegum orsökum.
Vanalega byrja konur að taka lyfið á 3-4 degi blæðinga og svo verður egglos oftast 4-7 dögum eftir að þú tekur síðustu pilluna af letrozole ( á ca 11-15 degi tíðarhringsins).
Byrjaðu að stunda kynlíf ca 3 dögum fyrir áætlað egglos og stundaðu kynlíf allavega annan hvern dag eða á hverjum degi. Alls ekki oftar en 1x á sólarhring.
Í marga áratugi var notað lyf sem kallst clomiphene citrate (clomid eða pergotime) við sama vandamáli og lýst hefur verið að ofan. Letrozole virkar betur til að fá “live birth” hjá konum með egglosvandamál en svipaður árangur er á báðum lyfjum hjá konum með óútskýrða ófrjósemi.
Hver ætti að prufa letrozole?
Áður en meðferð er hafin þarf stundum að gera ákveðnar rannsóknir. T.d. sæðisrannsókn , hormónablóðprufur, HSG ( hysterosalphingogram sem athugar hvort eggjaleiðarar eru opnir).
Ef þú er greind með egglosvandamál sem meginorsök ófrjósemi þá er oftast prófað að taka þetta lyf í ca 6 mánuði. Ef þú ert ekki þunguð á þeim tíma væri næsta skref að fara í glasameðferð.
Þrátt fyrir að egglos sé líklega til staðar venjulega getur lyfið hjálpað til þar sem það getur aukið líkurnar á því að eggjastokkurinn losi meira en eitt egg sem eykur líkur á getnaði sem og getur lyfið gert langa hringi aðeins styttri og reglulegri sem getur hjálpað til við getnað. Ef þú ert vanalega með 3-4 mánaða hring þá er mjög erfitt að vita hvenær egglos er ( þó það sé alltaf 2 vikum fyrir blæðingar þá er erfitt að vita það fyrirfram) og því getur lyfið hjálað þér að tímasetja hlutina rétt.
Ástæða þess að prófa þetta fyrst eru nokkrar. Þetta er ódýrara en IVF og mun minni líkur á fjölburaþungun.
Stór rannsókn í Kanada sem kom út í New England Journal og Medicine 2014 sýndi fram á 3,4% tvíburatíðni hjá konum sem tóku letrozole og voru með PCOS. Aðrar rannsóknir hafa sýnt allt niður í 1% líkur.
Auk þess er IVF mun tímafrekara ferli og krefst margra læknaheimsókna.
Það eru samt aðstæður þar sem þessi meðferð á ekki við og má þar t.d. nefna þegar sæðisrannsókn sýnir fram á óeðlilegt magn sáðfrumna og þá er ólíklegt að þessi meðferð hjálpi til við getnað. Eins ef eggjaleiðarar eru lokaðir hefur þessi meðferð engin áhrif.
Einnig er ekki víst að þetta hafi nein áhrif á konur sem eru með slæmt legslímuflakk ( endometriosu) eða eru í mikilli undirþyngd og fá ekki egglos vegna þess. Hjá þessum hópum væri IVF betri kostur.
Hversu vel virkar letrozole?
Rannsóknir hafa sýnt að áhrif letrozole á egglos er nokkuð góð. Rannsóknin frá 2014 sem var nefnd hér áður sýndi fram á að konur með PCOS fengu egglos staðfest í 61,7% kvenna og þær sem voru með PCOS urðu þungaðar í 27,5% tilfella innan 5 hringja og fengu lifandi barn 9 mán síðar..
Hverjar eru aukaverkanir Letrozole?
Letrozole hefur fáar aukaverkanir en helst era ð nefna höfuðverk, slappleika og svima. Þetta sést þó mjög sjaldan.
Ca 1% kvenna fá krampa í fætur og höfuðverk en einkennin fara í burtu um leið og þú hættir að taka pillurnar. Ólíkt clomiphene sem var notað áður fyrr ( og ennþá af sumum læknum) þá hefur letrozole ekki áhrif á skapið né heldur hefur það áhrif á slímhúðina í leginu né slímmyndum í leghálsinum sem er góð fyrir frjósemi.
Meðferðir eru tvenns konar:
Ef reglulegar blæðingar:
1. Bíddu eftir 1.degi blæðinga og skráðu hann hjá þér
2. Á 3.degi byrjaru á letrozole, 2 töflum í einu ( 5mg) og tekur 1x á dag í alls 5 daga
3. Það eru engar líkur á þungun þessa daga sem þú tekur töflurnar
4. Á ca 4-7 degi eftir að þú hættir á þeim verður oftast egglos.
5. Byrjaðu að stunda kynlíf 1x á dag til annan hvern dag frá 10.degi tíðarhrings og alveg fram að ca 18-20 degi tíðahrings.
6. Ef engar blæðingar á þeim tíma sem þær ættu að koma ( ca 28-30degi hringsins) þá geturu tekið þunguarpróf.
7. Ef neikvætt próf þá bíðuru eftir blæðingum og byrjar svo sömu meðferð aftur.
8. Prófum þetta í ca 6 mánuði.
Ef engar blæðingar eða verulega óreglulegar þá byrjum við með annað lyf fyrst áður en við byrjum á letrozole
a. Þú færð þá 10 daga skammt af primulut sem þú tekur 1 töflu 3x á dag í 10 daga. Engar blæðingar og engar líkur á þungun meðan þú tekur það.
b. Blæðingar koma ca 1-5 dögum eftir að þú hættir á þessum töflum.
c. Þegar blæðingarnar koma þá fylgiru planinu hér að ofan ( 1-8).