Tíðaverkir – helstu orsakir
Túrverkir, eða dysmenorrhea, eru verkir sem koma í tengslum við tíðablæðingar. Þeir eru mjög algengir og geta verið allt frá vægum óþægindum upp í mikla verki sem hafa áhrif á skóla, vinnu, svefn og daglegt líf.
Túrverkjum er oft skipt í frumkomna túrverki, þar sem enginn undirliggjandi sjúkdómur finnst, og afleidda túrverki, þar sem verkirnir tengjast öðru ástandi, til dæmis legslímuflakki eða kirtilvillu í legi.
Frumkomnir túrverkir
Frumkomnir túrverkir eru algengasta orsök tíðaverkja, sérstaklega hjá ungum konum. Þá er æxlunarkerfið eðlilegt og verkirnir stafa fyrst og fremst af náttúrulegum breytingum sem verða í leginu við tíðablæðingar.
Við upphaf blæðinga losna efni sem kallast prostaglandín úr legslímhúðinni. Þau valda samdrætti í vöðvum legsins svo legslímhúðin geti losnað og farið út með tíðablóðinu.
Ef mikið magn prostaglandína myndast geta samdrættirnir orðið kröftugir og valdið verulegum verkjum.
Verkir eru einnig vegna þrýstings á innra leghálsop sem er mjög þröngt og því meira sem blæðir því meiri þrýstingur er á leghálsinn sem veldur stingjum og sársauka. Eftir 2-3 daga hefur leghálsinn mýkst og því minnka túrverkir yfirleitt í kjölfarið.
Verkirnir eru oft mestir fyrsta eða annan dag blæðinga og minnka síðan. Þeir finnast gjarnan neðarlega í kvið en geta einnig leitt aftur í mjóbak eða niður í læri.
Prostaglandín geta einnig haft áhrif annars staðar í líkamanum og því geta túrverkir fylgt ógleði, niðurgangur, höfuðverkur, sviti eða almenn vanlíðan.
Legslímuflakk – endometriosis
Legslímuflakk (endometriosis) er mikilvæg orsök mikilla tíðaverkja. Þá finnst vefur sem líkist legslímhúð utan legsins, til dæmis í grindarholi eða á eggjastokkum.
Legslímuflakk getur meðal annars valdið:
- mjög miklum tíðaverkjum
- verkjum sem byrja áður en blæðingar hefjast
- langvinnum verkjum í grindarholi
- verkjum við eða eftir samfarir
- verkjum við hægðir eða þvaglát, sérstaklega á blæðingum
- erfiðleikum við að verða barnshafandi
Mikilvægt er að hafa í huga að styrkur verkja segir ekki alltaf til um umfang legslímuflakks.
Kirtilvilla í legi – adenomyosis
Við adenomyosis vex vefur sem líkist legslímhúð inn í vöðvavegg legsins.
Það getur valdið kröftugum túrverkjum og oft einnig miklum eða langvarandi tíðablæðingum. Sumar konur finna einnig fyrir þrýstingi eða þyngslatilfinningu í neðri hluta kviðar.
Adenomyosis verður algengara með hækkandi aldri en getur einnig komið fram hjá yngri konum.
Legvöðvahnútar
Legvöðvahnútar (fibroids/myoma) eru góðkynja hnútar sem vaxa úr vöðvavef legsins.
Þeir geta verið einkennalausir en hjá sumum valda þeir:
- miklum eða langvarandi tíðablæðingum
- túrverkjum
- þrýstingi eða verkjum í grindarholi
- þrýstingi á þvagblöðru eða endaþarm
Einkenni ráðast meðal annars af stærð, fjölda og staðsetningu hnútanna.
Koparlykkja
Koparlykkja getur aukið tíðablæðingar og túrverki, sérstaklega fyrstu mánuðina eftir uppsetningu. Hjá mörgum minnka þessi einkenni með tímanum.
Hormónalykkja hefur hins vegar oft öfug áhrif og getur minnkað bæði tíðablæðingar og túrverki verulega.
Sýkingar í grindarholi
Sýking í legi, eggjaleiðurum eða öðrum líffærum grindarholsins getur valdið verkjum sem stundum virðast tengjast tíðablæðingum.
Þá geta einnig komið fram einkenni eins og óvenjuleg útferð, verkir við samfarir, blæðingar á milli tíða eða hiti.
Aðrar mögulegar orsakir
Ekki allir verkir sem koma í kringum tíðablæðingar eiga uppruna sinn í leginu. Meltingarfæri, þvagfæri og vöðvar grindarbotns geta einnig valdið eða aukið verki.
Til dæmis geta einkenni frá iðraólgu (IBS) versnað í kringum tíðablæðingar vegna hormónabreytinga.
Hvenær er ástæða til frekara mats?
Túrverkir eru algengir en mjög miklir verkir eiga ekki sjálfkrafa að teljast eðlilegur hluti tíðablæðinga.
Ástæða getur verið til að leita læknis ef verkir:
- eru það miklir að þeir trufla skóla, vinnu eða daglegt líf
- hafa versnað verulega frá því sem áður var
- svara illa hefðbundnum verkjalyfjum
- koma einnig á öðrum tímum tíðahringsins
- fylgja mjög miklar eða óreglulegar blæðingar
- tengjast verkjum við samfarir, hægðir eða þvaglát
- koma skyndilega og eru óvenju miklir
Þá getur verið ástæða til að kanna sérstaklega hvort undirliggjandi orsök, svo sem legslímuflakk, adenomyosis eða legvöðvahnútar, sé til staðar.
Samantekt
Algengasta orsök túrverkja er aukin framleiðsla prostaglandína, sem veldur kröftugum samdrætti legsins. Þetta kallast frumkomin dysmenorrhea og er sérstaklega algengt hjá ungum konum.
Miklir eða breyttir tíðaverkir geta hins vegar stundum verið merki um undirliggjandi ástand. Legslímuflakk, adenomyosis, legvöðvahnútar, koparlykkja og sýkingar í grindarholi eru meðal mögulegra orsaka.
Ef tíðaverkir hafa veruleg áhrif á lífsgæði er ástæða til að meta orsök þeirra og hvaða meðferð hentar best.