Logo Decor

Hormónauppbót með estrogeni í gegnum húð

Hormónauppbótarmeðferð með estrógeni í gegnum húð

Hormónauppbótarmeðferð (HRT) með estrógeni í gegnum húð er algeng meðferð við einkennum sem tengjast minnkandi estrógenframleiðslu, einkum á breytingaskeiði og eftir tíðahvörf. Estrógenið er þá gefið sem plástur, gel eða úði og frásogast í gegnum húðina inn í blóðrásina.

Við hverju getur estrógenmeðferð hjálpað?

Minnkandi estrógenframleiðsla getur valdið ýmsum einkennum. Estrógenmeðferð getur meðal annars dregið úr:

  • hitakófum og nætursvita
  • svefntruflunum sem tengjast tíðahvarfaeinkennum
  • þurrki og óþægindum í leggöngum og þvagfærum
  • sumum skap- og líðanareinkennum sem tengjast hormónabreytingum

Estrógen hefur einnig mikilvægu hlutverki að gegna í beinheilsu og hormónauppbótarmeðferð getur dregið úr beintapi og hættu á beinþynningarbrotum meðan á meðferð stendur.

Af hverju estrógen í gegnum húð?

Þegar estrógen er tekið í töfluformi fer það fyrst um meltingarveginn og lifrina áður en það berst út í almenna blóðrás. Estrógen sem gefið er í gegnum húð fer hins vegar beint inn í blóðrásina og hefur því minni fyrstu áhrif á lifrina.

Þetta hefur ýmsa kosti. Estrógen í gegnum húð hefur almennt minni áhrif á storkukerfi blóðsins en estrógen í töfluformi og tengist lægri hættu á bláæðasega. Þessi lyfjagjöf getur því verið sérstaklega hentug hjá konum með ákveðna áhættuþætti, svo sem aukna hættu á blóðtappa, mígreni eða offitu.

Plástur, gel eða úði

Estrógen má gefa í gegnum húð með mismunandi hætti.

Estrógenplástur er límdur á húð og skipt um hann reglulega, oft einu sinni eða tvisvar í viku eftir tegund. Hann gefur frá sér tiltölulega jafnt magn estrógens yfir sólarhringinn.

Estrógengel er borið á húð daglega, samkvæmt leiðbeiningum viðkomandi lyfs. Gelið þarf að fá að þorna áður en húðin kemst í snertingu við aðra.

Estrógenúði er einnig yfirleitt notaður daglega og úðað á ákveðið húðsvæði samkvæmt leiðbeiningum.

Rétt notkun skiptir máli þar sem frásog getur verið mismunandi eftir lyfjaformi og notkun.

Þarf einnig prógesterón?

Ef kona er með leg þarf yfirleitt að gefa prógesterón eða annað prógestógen samhliða estrógenmeðferð. Ástæðan er sú að estrógen eitt og sér örvar legslímhúðina og getur við langvarandi notkun aukið hættu á ofvexti legslímhúðar og legslímukrabbameini.

Prógesterón verndar legslímhúðina gegn þessum áhrifum.

Konur sem hafa gengist undir legnám þurfa almennt ekki prógesterón og geta oft notað estrógen eitt og sér en ef þær eru með sögu um legslímuflakk þurfa þær að nota prógesterón einnig, þó þær séu leglausar.

Skammtar og eftirfylgd

Markmiðið er yfirleitt að nota lægsta skammt sem veitir fullnægjandi stjórn á einkennum. Réttur skammtur er einstaklingsbundinn og getur þurft að breytast eftir svörun við meðferð.

Árangur og aukaverkanir eru metin eftir að meðferð hefst og síðan reglulega. Ekki er alltaf nauðsynlegt að mæla estrógen í blóði til að stilla hefðbundna tíðahvarfameðferð; einkenni, aukaverkanir og klínísk svörun skipta oft meira máli.

Mögulegar aukaverkanir

Í upphafi meðferðar geta komið fram aukaverkanir á borð við:

  • eymsli eða spennu í brjóstum
  • höfuðverk
  • ógleði
  • uppþembu eða vökvasöfnun
  • skapbreytingar
  • blettablæðingar eða óreglulegar blæðingar

Margar þessara aukaverkana minnka þegar líkaminn aðlagast meðferðinni. Nýjar eða óútskýrðar blæðingar, sérstaklega eftir að meðferð hefur verið stöðug um tíma, þarf hins vegar að meta.

Áhætta og einstaklingsbundið mat

Hormónauppbótarmeðferð hentar ekki öllum og áður en meðferð hefst þarf að meta meðal annars aldur, tíma frá tíðahvörfum, blóðtappasögu, hjarta- og æðasjúkdóma, lifrarsjúkdóma og sögu um ákveðin hormónaháð krabbamein.

Samband hormónauppbótarmeðferðar og brjóstakrabbameins er meðal annars háð tegund meðferðar og lengd hennar. Samsett meðferð með estrógeni og prógestógeni getur við langvarandi notkun aukið áhættu á brjóstakrabbameini en rannsóknir eru sífellt að endurmeta þessa áhættu.  Áhættumynstrið getur verið  annað þegar estrógen er notað eitt og sér eftir legnám.

Því er mikilvægt að ávinningur og möguleg áhætta meðferðar séu metin fyrir hverja konu fyrir sig.

Samantekt

Estrógen sem gefið er í gegnum húð er áhrifarík meðferð við mörgum einkennum breytingaskeiðs og tíðahvarfa. Plástrar, gel og úðar veita estrógeni beint inn í blóðrásina og hafa minni áhrif á lifur og storkukerfi en estrógen í töfluformi.

Hjá mörgum konum er þetta því ákjósanleg leið til hormónauppbótarmeðferðar. Val á lyfjaformi, skammti og þörf fyrir prógesterón þarf þó alltaf að byggja á einstaklingsbundnu mati og reglulegri eftirfylgd.