Logo Decor

Upplýsingar um lykkjur

Það eru tvær gerðir af lykkjum til, kopar og hormóna. Gildistíminn er mislangur eftir týpum. Hormónalykkja getur verið 3,5 eða 8 ár og koparlykkja má vera 5 eða 10 ár.

Kopar er hormónalaus og veldur oftast auknum blæðingum og vægt verri túrverkjum  en blæðingar koma  á réttum tíma eins og þú ert vön.

 

Til sem mini ( Flexi-T fyrir þær sem hafa ekki átt barn ) og hefðbundin ( Nova T380) fyrir konur sem eiga börn.

Hormónanalykkjurnar eru Jaydess ( 3 ár), Kyleena ( 5 ár) og Mirena ( 8 ár). ome

Koparlykkja kostar 15þús.

Hormónalykkjur eru með progesteróni í sem veldur oftast minnkuðum blæðingum en eftir 1 ár frá uppsetningu eru ca 80% kvenna með talsvert minni blæðingar og sumar blæða ekkert.

Hormónalykkjur kosta allar 28.000kr.

Hægt er að taka allar lykkjunar hvenær sem er ef konur vilja skipta um getnaðarvörn eða huga að barneign. Um leið og lykkja er fjarlægð er frjósemi komin í eðlilegt horf.

Best að fá lykkjuna meðan þú ert á blæðingum eða strax eftir blæðingar. Má þó setja hana upp hvenær sem er en á þessum tímum er leghálsinn aðeins opinn svo uppsetning er auðveldari.

Í flestum tilfellum er minna blæðingarrugl ef þessi tímasetning er valin þó það fylgi oftast óregla fyrstu mánuðina, sérstaklega ef hormónalykkja er sett upp.

Allir læknarnir okkar eiga þessar lykkjur til á lager svo þú þarft ekki að koma með lykkju með þér ef þú ert óviss fyrir tímann hvernig lykkju þú vilt. Gott getur verið að taka fram við ritara að þú sért að huga að lykkju þó það sé ekki krafa.