Hormónauppbót með testosteroni
Upplýsingar hvernig hormónauppbót með Testogeli virkar:
- Testogel
- Testosteron í gegnum húð í gelformi
- Náttúrulegt hormón hjá konum sem byrjar að lækka um 20 ára.
- 50% lægra þegar kona er 40 ára vs 20 ára og heldur síðan áfram að lækka.
- Aðal ábending fyrir notkun er lækkuð kynhvöt. Einnig finna margar konur fyrir mun á andlegri líðan til hins betra, minni kvíða, meira „drive“ að gera hluti, minni vöðvaþreyta ofl.
- Vöðvamassi rýrnar með lækkuðu testosteroni svo uppbótarmeðferð getur hægt á þessari rýrnun.
- Aukaverkanir geta verið aukinn hárvöxtur og bólur en gerist sjaldnast með þeim skömmtum sem þér er ráðlagt að taka, eru afturkræfar. Óafturkræfar aukaverkanir ef notað er of mikið geta verið blettaskalli og dýpri rödd.
- Hefðbundinn skammtur er 0,5 mL á húð daglega að morgni, eða 1,0 ml annan hvern dag.
- Gefur þér svo 0,5 mL á dag á húð á t.d. framhandlegg og nuddar þeim saman. Þá frásogast þetta auðveldlega án þess að vera þvegið af með handþvotti.
- 0,5mL eru ca eins og krækiber að stærð.
- Tekur yfirleitt 6-8 vikur að fá fram fullri virkni, getur tekið lengri tíma og allt upp í 6 mánuði.
- Eftir ca 2 mánuði getur verið nóg að nota þetta 2-3x í viku. Hver og ein kona finnur sjálf hvað hentar sér.
- Kassinn dugar í rúmlega 1 ár ef notað í réttum skömmtum. Fyrir endurnýjun getur verið gott að mæla í blóðprufu hvort gildin séu í lagi en ef líðan er góð og engar aukaverknir er ekki alltaf þörf á því. Þinn sérfræðingur metur hvort blóðprufa sé þörf eða ekki.
- Þegar 2 bréf eru eftir í kassanum og þú vilt halda þessu áfram geturu sent okkur skilaboð á heimasíðu okkar og óskað eftir endurnýjun. Ef þinn læknir vill prufur áður sendir hann beiðni í sameind.is og lætur þig vita. Ef prufur eru í lagi er svo lyfseðillinn endurnýjaður.
- Þetta eykur ekki líkur á blóðtappa né brjóstakrabbameini en getur haft smávægileg áhrif á kólesteról.
••Þú ættir því að láta fylgjast með því annað slagið ef þú hefur verið hækkuð í kólesteróli.